26.1.2007 | 07:59
Silvía Nótt er æði
Það ekki í fyrsta skifti sem landinn "hnupplar"
Silvía Nótt segir einhver hálf blankur "tjalli" er eitthvað nýtt sem "hún hefur skapað"!!!!???
Það er nú einfaldlega svo:) að fröken Slvía er lánað fyrirbæri frá Svíþjóð (sem kanski hefur lánað það frá einhverjum), er fólk búið að gleima því að "Grynet" var í heimsókn á Íslandi og aðstoðaði við uppsettningu "verksins", en hvað sem því lýður, þá er fröken Silvía meiriháttar vel útfært dæmi og daman er glæsilega gyrnileg, og hún á eftir að komast vel áfram á þeirri ástæðu einni, ef hún lætur ekki barna sig of snemma:)
Það er samt athyglisvert í sambandi við "tjallann" að hann segir sannleika eins og "tjallar" ekki allt of oft gera, það virðist vera orðið venja að "skrökva" í lesendur á Íslandi að einhver sé orðinn númer í útlandinu og það virka það vel, að hallir fyllast af áheirendum bara þess vegna:) góður bissness:)
Mér fynnst samt að þetta sé ekkert sniðugt, því oft á tíðum eru það "fórnarlömbin" sjálf sem falla í gröf þeirra sem grafa, það er. þegar "draumurinn" ekki verður veruleiki.
Skrítið að bankafólkið eys út aurum (sem eru náttúrulega afskrifaðir sem auglýsinga kostnaður) annarra í þetta, það er eins og það sé einhver klíka sem getur athafnað sig að vild á þessu viðskifta sviði, og þessi klíka er þar af leiðandi bremsuklossi á marga listamenn sem eru með eitthvað nýtt og jafnvel stundum gott fram að færa, en eru ekki nógu klámfengir á sviði eða sætir í framan eða ekki nógu viljugir til að láta hnalla sig að geðþótta misvitra "umba".
Ég er ekki að gefa frat í Fröken Silvíu Nótt, hún er í uppáhaldi hjá mínum börnum og það besta sem Ísland hefur sent á "Efróið" hingað til.
Bara svona að velta vöngum:)
Æl
Silvía Nótt með nýjan umboðsmann | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.