Færsluflokkur: Löggæsla

Björn Bjarnason sviftur ferðafrelsi og vegabréfi !!!?

fyrst langar mig að benda ykkur á myndband sem slær öll myndbönd um Íslenska spillingu og hverjir mögulega eru leikstjórar hennar og leikendur, þetta myndband er á þessari webbsíðu www.icelandicfury.com einnig á youtube með slóðina http://www.youtube.com/watch?v=48WYPBJxECA  tímaeyðsla sem borgar sig !!!

Þá kemur að tillögu um frelsis sviftingu Björns Bjarnasonar, að hann verði settur í farbann og af honum tekið vegabréf, orsök: LANDRÁÐ!!! Björn Bjarnason hefur ötullega staðið að því markmiði að vopna Ísland og eyðileggja hlutleysistefnu þá sem bjargað hefur Íslandi frá heljargreipum hernaðar þjóða, samanber "þorskastríðin" svo kölluðu, er Íslendingar tóku yfirráð yfir sínum eigin auðlyndum og færðu út landhelgina, það voru ekki færri en fjögur "þorskastríð" háð, og það bjargaði íslenskum málstað að vera vopnlaus þjóð, Íslendingar hafa ekki nokkurt bolmagn og hafa aldrei haft til hernaðar reksturs, það má líka benda á hvernig hann hefur ötullega staðið fyrir því að vopna lögreglu landsins undir fáránlegum forsendum, þar sem eina augljósa staðreyndin í sambandi við vopnaburð lögregluþjóna er að beita þeim vopnum á íslenska meðborgara sem þreittir eru orðnir á gjörspillingu ráðandi afla í bæði fjármála og stjórnmála lífi landsins, sem betur fer tókst ekki mannfýlunni að ná alla leið með þessa landráðastefnu sína, því tel ég tímabært að hann sé höndum tekinn og settur í gæslu og ófrelsi sem aðrir grunaiðr terroristar, því það er það sem hann er og hefur með gjörðum sínum sannað, þær voðalegu afleiðingar sem vopnaskakstur hefur í för með sér eru ekki eitthvað sem tekið er aftur og beðist afsökunnar á, það eru oftast endanlegar afleiðingar fyrir þá sem verða fyrir barðinu á fíflum sem bera vopn, í hvaða tilgangi sem því er nafn gefið, Björn Bjarnason og hans fylgismenn teljast með réttu vera LANDRÁÐAMENN!!! og hótun þeirrar stefnu sem þeir hafa fylgt gagnvart þjóðinni er ekkert hægt að nefna nema LANDRÁÐ!!!

Ég uppmana alla sem eru fylgjandi þessari tillögu að skrá sig í hóp sem heitir Icelandic Fury á Smettisskinnu öðru nafni Facebook, við munum vinna ötullega að afvopnun allrar þjóðarinnar, það er engin ástæða fyrir nokkurn á Íslandi að eiga vopn til annars en nauðsynlegra veiða, skammbyssur og annar fíflagangur af því tagi hefur ekkert erindi til landsins, hvorki sem íþrótt eða annað og er leikur einn að taka öll vopn úr umferð með réttri lagasettningu, þar sem innihafandi af ólöglegum vopnum verður gert að "tilraun til morðs" eða öðru góðu tæknilegu heiti sem við á og refsing í samræmi við það, þetta tekur örstuttan tíma að framkvæma og gera skiljanlegt fyrir allri þjóðinni.

með byltingar kveðju og von um algjöra hreinsun í stjórnkerfi Íslands

sjoveikur


Þetta er eins og hrákur framan í

Þetta er vert skoðunar, á að leifa grunuðum þjófum að sóa því sem þeir hugsanlega hafa stolið á meðan málið er rannsakað? Nú vil ég ekki segja að það sé á hreinu að einhverju hafi verið stolið, en það gerir ekki lögreglan heldur þegar einhver er tekin grunaður um rán og settur í einangrun, (þetta getur átt við grun um hvaða glæp sem er), er það eitthvað sem vefst fyrir lögfræðingum í þessum hildarleik sem er í gangi í hinu íslenska alþjóða peningakerfi? það virðist sem svo að því stærra og grófara sem morðið er, því meira tæknilegt og óskýrt verður allt málið, kanski þetta sé það sem ráðherra lögreglumála og varnamála hafi pælt í að gera í vopnskakstri þeim sem hann hefur haft á prjónunum, ef við skjótum nógu marga, þá er það ekki morð, tæknilega séð,? er það svo? það getur fjandakornið ekki verið dýrara að frysta allt og greiða síðan skaðabætur tilhanda þeim sem saklausir verða fyrir barðinu á þeim sem stolið hafa, því það eru jú þeir sem eru sekir sem eiga að standa fyrir skaðanum, og því þeirra að borga brúsann, er það réttlætanlegt að þeir sem ekki hafa verið leiðandi í þessum ósóma verði að horfa uppá þjóðareignir hverfa (gufa upp) á meðan "gáfumenn" sem margir hverjir eru tengdir ósómanum eru að þrasa um "tæknileg" atriði, það getur varla verið að glæpur verði svo stór að hann vaxi uppúr því að vera glæpur, það hefur aldrei verið hægt að "afbarna", það verður að "fóstureyða", ætlar fólk að kokgleipa þennan falska krók "stjórnar rof", ??? eru landsmenn sauðfé sem lætur reka sig til þrældóms (lesist slátrunar)???

alvöru byltingu núna, eða þetta verður nýtt Gasa að mínu mati, fólk!!! eiga börn framtíðar ekki betra skilið en að erfa þennan skít???

ÆL, sjóveikur


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband